Lítið að gerast..

Það er ekki hægt að segja að ég sé að láta hlaupin angra mig sérstaklega þessa dagana.  Fór 10 km á sunnudaginn (á stuttbuxum), ætlaði 13 en snéri við eftir 5 þar sem lappirnar voru ekki alveg að gera sig.  Tók 5 í gærkvöldi, mikið betri en samt ekkert hlaup í dag sökum vinnu og Icelandair hlaupinu sleppi ég, þar sem einstaklingi er boðið að koma fyrir hönd Inspira út að borða annaðkvöld og ég fæ að fara - heppinn.  Opin kerfi eru svona rausnarlegir en auðvitað þarf jú eitthvað að hlusta í staðinn.  Það er fordrykkur milli 18 - 19, ekki nokkur ástæða til að láta bíða eftir sér.. mæti 17:59.  Boðið verður upp á Peter Lehman Weighbridge Chardonnay - hvítvín og Peter Lehman GSM - rauðvín með matnum... síðan verður opinn bar - gott skipulag.  Árans... ég á bæði fund klukkan 9:00 og 10:30 á föstudaginn, muna að kaupa tyggjó.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband